Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 25. júní 2021 var lögð fram fyrirspurn
Stáss Design ehf.
dags. 4. júní 2021 um að stækka leikskólann Sælukot á lóð nr. 1 við Þorragötu,sem felst í að fjarlægja tvo skúra á lóðinni og byggja í þeirra stað tveggja hæða viðbyggingu við austurenda núverandi byggingar, samkvæmt uppdrætti dags. 4. júní 2021. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. ágúst 2021.