Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 15. janúar 2021 var lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Skúlagötusvæðis, samþykkt 13. maí 1986. Frá samþykkt hafa verið gerðar allnokkrar breytingar en sú nýjasta tók gildi þann 27. apríl 2020. Í breytingunni felst breyting á skipulagmörkum á austurenda svæðisins, nánar tiltekið deiliskipulagsmörk við Snorrabraut, vegna breytinga á aðliggjandi deiliskipulagi fyrir Hlemm og nágrenni. Þar stendur til að færa gatnamót Snorrabrautar ásamt borgarlandi inn í þá skipulagsáætlun, samkvæmt uppdr. Yrki arkitekta ehf. dags. 25. janúar 2021. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.