Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 27. febrúar 2015 var lögð fram fyrirspurn Guðna Pálssonar dags. 26. febrúar 2015 um að hækka húsið á lóðinni nr. 29 og 29A við Skipholt, byggja stiga/lyftuhús norðan við húsið sem tengist svalagöngum og svalir á suðurhlið hússins, samkvæmt uppdr. GP-arkitekta ehf. dags. 25. febrúar 2015. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju. EInnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. mars 2015.