Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa frá 12. júní 2020 var lögð fram fyrirspurn Kjartans Hafsteins Rafnssonar dags. 29. maí 2020 um uppbyggingu á milli húsanna á lóð nr. 1 og 3 við Bræðraborgarstíg. Um er að ræða nýbyggingu, kjallara, hæð og ris á lóð nr. 1 við Bræðraborgarstíg, samkvæmt uppdr. K.J.ARK slf. dags. 26. maí 2020. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt ásamt tölvupósti Kjartans Rafnssonar dags. 21. ágúst 2020 þar sem fyrirspurn er dregin til baka.