Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa þann 21. mars 2014 var lagt fram bréf HD-verk ehf. dags. 20. mars 2014 vegna neikvæðrar afgreiðslu umhverfis- og skipulagsráðs 19. febrúar sl. á fyrirspurn varðandi breytta notkun á jarðhæð hússins að Bræðraborgarstíg 1 úr verslun og leikskóla í gistiheimili. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og skrifstofu sviðstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skrifstofu sviðsstjóra dags. 6. maí 2014.