Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Ártúnshöfða - Eystri vegna lóðarinnar nr. 5 við Höfðabakka. Í breytingunni felst að koma fyrir fimm smáhýsum á lóðinni en Velferðarsvið Reykjavíkurborgar leitast eftir að koma fyrir smáhýsum á völdum stöðum í borginni sem búsetuúrræði fyrir skjólstæðinga sína. Ekki er gert ráð fyrir að búseta sé varanleg notkun á lóðinni. Við breytinguna minnkar nýtingarhlutfall lóðarinnar og byggingareitur færist, samkvæmt uppdr. teiknistofunnar
Stika ehf.
dags. 13. júní 2019.