Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 15. desember 2017 var lögð fram fyrirspurn Magnúsar Jenssonar, mótt. 21. september 2017 um breytingu á deiliskipulagi Barónsreits vegna lóðar nr. 28 við Skúlagötu sem felst m.a. í breytingu á byggingarmagni og byggingarreit ásamt breytingu á bílastæðum við lóð. skv. tillögu, ódags. Einnig er lögð fram greinargerð Magnúsar Jenssonar dags. 9. janúar 2017 sem kemur í stað fyrri greinargerðar. Fyrirspurninni var frestað og er nú lögð fram að nýju.