Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 2. október 2018 þar sem sótt er um leyfi til að síkka glugga og grafa frá suðurhlið á 2. áfanga skólans, breyta áhaldageymslu í skrifstofu og innrétta hluta búningsherbergja sem áhaldageymslur sem og setja upp fataherbergi fyrir frístundaheimili í skólabyggingu á lóð nr. 26 við Haðaland.
Erindinu fylgir bréf hönnuðar dags. 25.09.2018 ásamt lista yfir breytingar. Gjald kr. 11.000