Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Umhverfis- og skipulagssviðs dags. 15. júlí 2021, varðandi breytingu á deiliskipulagi Fossvogsskóla vegna lóðarinnar nr. 26 við Haðaland. Í breytingunni felst að gera nýjan byggingarreit fyrir tímabundnar kennslustofur, samkvæmt uppdr. Landmótunar dags. 15. júlí 2021. Tillagan var grenndarkynnt frá 27. júlí 2021 til 25. ágúst 2021. Engar athugasemdir bárust.