Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 23. september 2016 var lögð fram fyrirspurn Þormars Ingimarssonar, mótt. 16. september 2016, um að breyta notkun hússins á lóð nr. 50B við Skipholt úr verslunarhúsnæði í íbúðarhúsnæði til útleigu. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 30. september 2016.