Lögð fram umsókn Gríms Más Jónassonar dags. 24. janúar 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi Vatnagarða vegna lóðanna nr. 2 við Korngarða og 2-4 við Sundabakka. Í breytingunni felst að færa lóðarmörk milli lóðanna ásamt því að lóðastærð er lagfærð til samræmis við fasteignaskrá, samkvæmt uppdr. Arkís arkitekta ehf. dags. 5. nóvember 2020.
Svar
Vísað til skipulags- og samgönguráðs. Vakin er athygli á að erindið fellur undir lið 8.2 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.