Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 22. apríl 2022 var lagt fram erindi Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 20. apríl 2022 þar sem óskað er eftir umsögn skipulagsfulltrúa vegna umsóknar Einingaverksmiðjunnar ehf. um endurnýjun starfsleyfis að Breiðhöfða 10. Óskað er eftir umsögn um hvort starfsemin sé í samræmi við skipulag og hvort áætlaðar breytingar á skipulagi geti komið í veg fyrir endurnýjun starfsleyfis til 30. september 2022. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.