Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Ívars Arnar Guðmundssonar dags. 19. nóvember 2020 varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags Breiðholts III, austurdeild, vegna lóðarinnar nr. 4 við Hraunberg. Í breytingunni felst að bætt er við heimild til að gera íbúðir á efri hæðum, samkvæmt tillögu
Nexus arkitekta ehf.
dags. 8. desember 2020. Einnig er lögð fram grunnmynd
Nexus arkitekta ehf.
dags. 4. nóvember 2020. Tillagan var auglýst frá 29. janúar 2021 til og með 15. mars 2021. Engar athugasemdir bárust.