Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 1. mars 2016 þar sem sótt er um leyfi til að stækka vörulyftu milli hæða og láta hana þjóna kjallara einnig, setja hringstiga milli 1. hæðar og kjallara í húsnæði Bakarameistarans, endurinnrétta geymslu- og starfsmannaaðstöðu í suðurhluta hússins/kjallara, endurinnrétta skrifstofur í norðurhluta 2. hæðar og setja svalir á verslanakjarnann Suðurver á lóð nr. 45-47 við Stigahlíð. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 18. mars 2016. Erindi var grenndarkynnt frá 12. apríl til og með 10. maí 2016. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir. Mörkin lögmannsstofa hf. Ragnar Halldór Hall, hlr. f.h. íbúa að Stigahlíð 43, dags. 9. maí 2016. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á fundi skipulagsfulltrúa 13. maí 2016 og er nú lagt fram að nýju. Meðfylgjandi er brunahönnunarskýrsla Verkís dags. feb. 2016 og samþykki eins eiganda af þrem. Gjald kr. 10.100