Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 19. febrúar 2016 var lögð fram fyrirspurn Sigurðar Halldórssonar, mótt. 8. febrúar 2016, um að hækka verslunar- og þjónustuhús á lóð nr. 45-47 við Stigahlíð um tvær íbúðarhæðir með inndregnum svölum til vesturs og svalagöngum til austurs, samkvæmt tillögu Glámu/Kím, dags. í febrúar 2016. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. mars 2016.