Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 2. febrúar 2018 var lagt fram erindi Mosfellsbæjar dags. 29. janúar 2018 þar sem kynnt er tillaga dags. 15. janúar 2018 að breytingu á aðalskipulagi Mosfellsbæjar 2011-2030, frístundasvæði í suðurhluta Mosfellsbæjar, sem felst í breytingum á yfirlitstöflum svæða fyrir frístundabyggð í greinargerð aðalskipulags. Erindinu var vísað til umsagnar deildarstjóra aðalskipulags og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn deildarstjóra aðalskipulags dags. 9. febrúar 2018.