Fyrirspurn
Lagður fram tölvupóstur skipulagsfulltrúa Mosfellsbæjar, dags. 13. júní 2016, þar sem tillaga að breytingu á aðalskipulagi Mosfellsbæjar, Langihryggur, breyting á landnotkun, dags. 26. maí 2016, er vísað til kynningar og umsagnar Reykjavíkurborgar. Einnig er lögð fram umhverfisskýrsla Mosfellsbæjar, dags. í júní 2016. Jafnframt er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, deildarstjóra aðal- og svæðisskipulags, dags. 7. júlí 2016.