Fyrirspurn
Lagt fram erindi Mosfellsbæjar dags. 19. febrúar 2018 þar sem kynnt er tillaga að breytingu á aðalskipulagi Mosfellsbæjar 2011-2030 fyrir athafnasvæði í Flugumýri/Desjamýri sem felst í breyttri landnotkun, samkvæmt uppdr. teiknistofu arkitekta Gylfa Guðjónssonar og félaga ehf. dags. 8. janúar 2018. Óskað er eftir að athugasemdir/umsagnir berist fyrir 12. mars 2018.