Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 23. júlí 2019 þar sem sótt er um leyfi til að byggja tveggja hæða viðbyggingu úr stálgrind á steyptum sökkli sem tengist 2. og 3. hæð ásamt því að gerð er grein fyrir áður gerðum breytingum á innra skipulagi atvinnuhúss á lóð nr. 1-3 við Grjótháls. Erindi fylgir bréf umsækjanda dags. 17. júlí 2019. Stækkun: 2.090,2 ferm., 10.499,2 rúmm. Eftir stækkun, samtals: 10.243,2 ferm., 54.309,4 rúmm. Gjald kr. 11.200