Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn
Zeppelin ehf.
f.h. Landslagna ehf. dags. 12. apríl 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Fálkagötureita vegna lóðarinnar nr. 10 við Fálkagötu. Í breytingunni felst að fjölga íbúðum um eina með því að byggja þakhæð ofan á húsið ásamt því að setja svalir á húsið, samkvæmt uppdr.
Zeppelin ehf.
dags. 20. febrúar 2018. Tillagan var auglýst frá 7. maí 2018 til og með 19. júní 2018. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Dögg Mósesdóttir og Daniel Schreiber dags. 4. júní 2018. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 22. júní 2018 og er nú lagt fram að nýju.