Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 13. janúar 2017 var lögð fram umsókn T.ark arkitekta ehf., dags. 20. desember 2016, um að breyta notkun hússins á lóð nr. 10 við Grensásveg úr skrifstofuhúsnæði í langtíma leiguíbúðir. Einnig er lagt fram bréf T.ark arkitekta ehf., dags. 21. desember 2016. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 27. janúar 2017.