Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 19. júní 2020 var lögð fram fyrirspurn Kjartans Hafsteins Rafnssonar dags. 8. júní 2020 um breytingu á notkun hússins á lóð nr. 27 við Skipholt úr hóteli í íbúðarhúsnæði. Einnig eru lagður fram uppdrættir K.J. hönnunar ehf. dags. 13. september 2018. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. júlí 2020.