Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 23. október 2015 var lögð fram fyrirspurn Þórðar Birgis Logasonar, mótt. 9. október 2015, um að breyta notkun íbúðarhúsnæðis á vestri hluta lóðarinnar nr. 9 og 9A við Veghúsastíg í íbúðar- og/eða atvinnuhúsnæði, fjölga íbúðum, heimila rekstur gistiheimilis í flokki I, II og III, rífa tengibyggingu og byggja þriggja hæða nýbyggingu með kjallara milli húsanna ásamt hækkun á hæðarkvóta vegna endurnýjunar á þaki, samkvæmt uppdr. Ark studio dags. 8. október 2015. Einnig er lögð fram greinargerð lögfræðistofu Gunnars Thoroddsen hrl. f.h. RR hótels ehf., dags. 8. október 2015.