Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. júní 2015 þar sem spurt er um leyfi til að endurbyggja hús, byggja nýja tengibyggingu milli austur- og vesturhluta og innrétta 11 litlar íbúðir í húsi á lóð nr. 11B við Veghúsastíg. Erindi fylgir ástandsskýrsla frá Mannvit dags. 20. apríl 2015 og samþykki lóðarhafa Lindargötu 34/34A dags. 6. maí 2015. Niðurrif: 29,4 ferm., 80,1 rúmm. Viðbygging: 191,5 ferm., 549,6 rúmm. Gjald kr. 9.823