Á fundi skipulagsfulltrúa 20. nóvember 2015 var lögð fram umsókn
Ark Studio ehf.
, mótt. 16. nóvember 2015 varðandi breytingu á deiliskipulagi Skúlagötusvæðis vegna lóðanna nr. 9 og 9A við Veghúsastíg. Í breytingunni felst breytt notkun íbúðarhúsnæðis á vestari hluta lóðar í íbúðar- og/eða atvinnuhúsnæði, heimild til reksturs gistiheimilis í flokki I, II eða III, rífa núverandi tengibyggingu á baklóð og byggja nýja tengibyggingu með kjallara milli húsanna, stækkun á byggingareit, hækkun á nýtingarhlutfalli o.fl., samkvæmt uppdr.
Ark Studio ehf.
dags. 16. nóvember 2015. Einnig er lagt fram umboð
RR hótels ehf.
, dags. 16. nóvember 2015. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.