Fyrirspurn
Lögð fram fyrirspurn Guðrúnar Sigurðardóttur, dags. 5. febrúar 2015 varðandi skilmálabreytingu á deiliskipulagi reits 1.152.4 vegna lóðar nr. 9 við Veghúsastíg. Breytingin felst m.a. í endurnýjun geymslu, að breyta notkun úr geymslu í íbúðar og/eða atvinnuhúsnæði og að byggja kjallara undir húsinu. Auk þessa er sótt um að endurgera vestara bakhús, færa tengibyggingu framar á lóð og byggja kjallara undir því.