Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 22. júní 2021 þar sem sótt er um leyfi til að koma fyrir útiveitingum fyrir 15 til 20 gesti á veitingastað í fl.II, tegund Kaffihús á lóð nr. 7 við Veghúsastíg í porti á lóð nr. 9 og tekið er í burtu bráðabirgða starfsmannarými sem var í forrými á nr. 7 og það flutt í nýbyggingu stafsmannarýmis í kjallara rými 0001 á lóð nr. 9 við Veghúsastíg. Gjald kr. 12.100