Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 5. nóvember 2021 var lögð fram fyrirspurn Sigurjóns Guðbjörns Geirssonar dags. 12. október 2021 um að innkeyrsla og bílastæði sem þegar er á lóð nr. 38 við Bárugötu verði heimilað, samkvæmt skissu á yfirlitsmynd ódags. Einnig er lögð fram ljósmynd. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. nóvember 2021.