Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 8. október 2019 þar sem sótt er um leyfi til að byggja hæð úr timbri, klædda bárujárni, ofan á núverandi hús á lóð nr. 10 við Baldursgötu. Erindi fylgir afrit í A4 af eldri samþykktum teikningum. Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 17. september 2019. Stækkun: 98,6 ferm., 250,7 rúmm. Gjald kr. 11.200