Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 13. desember 2019 var lögð fram fyrirspurn Ingunnar Helgu Hafstað dags. 31. október 2019 ásamt greinargerð dags. 30. október 2019 um afmörkun nýs byggingarreits í bakgarði lóðar nr. 34-36 við Lindargötu fyrir einnar hæðar byggingu sem yrðu um 50 m2 að stærð. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 31. janúar 2020.