Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 22. ágúst 2014 var lögð fram fyrirspurn Vinnustofunnar Þverá ehf. f.h. Rent-leigumiðlunar ehf. dags. 20. ágúst 2014 varðandi breytingu á nýtingarhlutfalli lóðanna nr. 34 og 36 við Lindargötu og endurbyggja og stækka núv. bakhús merkt 34A, samkvæmt tillögu ódags. Fyrirspurninni var frestað og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. september 2014.