Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 17. ágúst 2018 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 14. ágúst 2018 þar sem sótt er um leyfi til að byggja útigeymslu fyrir aðföng við aðkomu að eldhúsi á lóð nr. 66-68 og 70 við Laugaveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 31. ágúst 2018.
Stækkun; 11,7 ferm, 36,5 rúmm. Gjald kr. 11.000