Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 17. maí 2022 þar sem sótt er um leyfi til að endurbyggja og hækka hús og byggja stigahús á bakhlið einbýlishúss á lóð nr. 9 við Brekkustíg. Erindi var grenndarkynnt frá 14. júní 2022 til og með 13. júlí 2022. Eftirtaldir sendu athugasemdir: Sigrún Baldvinsdóttir dags. 5. júlí 2022, Þorsteinn Geirharðsson dags. 11. júlí 2022 og Kjartan Sveinsson og María Huld Markan Sigfúsdóttir dags. 13. júlí 2022.