Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 24. febrúar 2017 var lögð fram fyrirspurn Ingunnar Helgu Hafstað, mótt. 13. febrúar 2017, um að breyta íbúð á 2. hæð hússins á lóð nr. 19 við Skólavörðustíg í verslun eða skrifstofu. Einnig er lagt fram bréf Ingunnar Helgu Hafstað, dags. 13. febrúar 2017. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 3. mars 2017.