Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga Argos dags. 14. desember 2007 að breytingu á deiliskipulagi Grjótaþorps vegna flutnings Gröndalshúss á lóð nr. 5B við Vesturgötu. Auglýsingin stóð yfir frá 29. september 2010 til og með 14. janúar 2011. Athugasemd barst frá Þorgeiri Þorgeirssyni dags. 10. janúar 2011.