Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 6. desember 2013 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 3. desember 2013 þar sem sótt er um leyfi til að breyta notkun rýmis á annarri hæð úr veitingastað í flokki I í flokk II í húsinu á lóðinni nr. 18 við Laugaveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags.12. desember 2013..
Gjald kr. 8.500