Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 25. janúar 2019 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 22. janúar 2019 þar sem sótt er um leyfi til að opna á milli 1. 2. 3. og 4 hæðar inn á nýja tengibyggingu, mhl. 01, á lóð nr. 7 og á 5. hæð að opna út á nýjar svalir sem nota á sem flóttasvalir og fara út yfir lóð nr. 7 á húsinu á lóð nr. 9 við Ármúla. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. febrúar 2019.
Gjald kr. 11.000