Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn
Yrki arkitekta ehf.
dags. 19. júlí 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Ármúla, Vegmúla, Hallarmúla vegna lóðarinnar nr. 9 við Ármúla. Í breytingunni felst að notkun bakhússins verði breytt úr bílageymsluhúsi í bílageymsluhús/tæknirými, samkvæmt uppdr.
Yrki arkitekta ehf.
dags. 19. júlí 2018. Tillagan var grenndarkynnt frá 5. október 2018 til og með 3. nóvember 2018. Engar athugasemdir bárust.