Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 26. febrúar 2016 var lögð fram fyrirspurn Davíðs K. Karlssonar, mótt. 8. janúar 2016, um að byggja óupphitaðan sólskála við austurhlið hússins á lóð nr. 35 við Hátún, samkvæmt uppdr. Teiknistofunnar H.R. ehf., dags. 4. janúar 2016. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 4. mars 2016.