Fyrirspurn
Lagður fram tölvupóstur skrifstofu borgarstjórnar dags. 25. júní 2014 þar sem óskað er eftir umsögn umhverfis- og skipulagssviðs á umsókn Centerhótels ehf. um tækifæris- og tímabundið áfengisveitingaleyfi á Centerhotels Plaza/Ingólfstorgi, Aðalstræti 4, fyrir dagana 30. júní til 6. júlí 2014 frá kl. 12:00 til kl. 22:30 og dagana 7. júlí til 13. júlí 2014 frá kl. 12:00 til kl. 22:30. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. júní 2014 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. júlí 2014.