Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn
THG Arkitekta ehf.
dags. 23. janúar 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Suðurlandsbrautar, Hallarmúla, Ármúla og Vegmúla vegna lóðarinnar nr. 7 við Ármúla. Í breytingunni felst að tengja núverandi byggingar Ármúla 7 við rekstur hótelsins í Ármúla 9, bæta inndreginni hæð ofan á tengibyggingu, byggingarreitur við tengibyggingu verður færður inn frá Ármúla og í staðinn færist byggingarreitur út við vesturgafl þar sem ný flóttaleið verður byggð, samkvæmt uppdr.
THG Arkitekta ehf.
dags. 23. janúar 2019. Tillagan var grenndarkynnt frá 25. febrúar 2019 til og með 25. mars 2019. Engar athugasemdir bárust.