Á fundi skipulagsfulltrúa 28. ágúst 2015 var lögð fram fyrirspurn
Norðurfara ehf.
, dags. 22. ágúst 2015, varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 2-4 við Eirhöfða sem felst í að norðurhluta lóðar við Eirhöfða 2-4 er skipt í tvær lóðir. Gerð er innkeyrsla fyrir hvora lóð fyrir sig, annars vegar frá Breiðhöfða að lóð norðaustan megin við Eirhöfða 2-4 og hins vegar frá Eirhöfða að lóð norðvestan megin við Eirhöfða 2-4, samkvæmt meðfylgjandi uppdrætti
Landslags ehf.
ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 1.september 2015.