Á fundi skipulagsfulltrúa 13. maí 2016 var lögð fram fyrirspurn Tvíhorf sf. f.h. Vagneigna ehf., dags. 3. maí 2016, um að reisa 1.100 fm. stálgrindarhús á lóðinni nr. 2-4 við Eirhöfða, samkvæmt tillögu Tvíhorf sf., ódags. Einnig er lagt fram bréf
Tvíhorfs sf.
f.h. Vagneigna ehf., dags. 27. apríl 2016 og samkomulag Reykjavíkurborgar og Vagneigna ehf., dags. 27. maí 2016, um kvöð vegna flutnings bygginga á Eirhöfða 2-4. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 31. maí 2016.