Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 27. janúar 2017 var lagt fram bréf Samgöngustofu, dags. 26. janúar 2017, þar sem óskað er eftir umsögn skipulagsfulltrúa á umsókn Bjarka Páls Ágústssonar f.h. Storkuberg ehf. um að reka ökutækjaleigu að Nethyl 2. Sótt er um leyfi fyrir 8 ökutækjum í útleigu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 8. febrúar 2017.