Að lokinni auglýsingu er lögð fram umsókn skrifstofu eigna og atvinnuþróunar, mótt. 29. ágúst 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Gylfaflatar vegna lóðanna nr. 9-11 við Bæjarflöt og 15-17 við Gylfaflöt. Í breytingunni felst að byggt verði athafnahúsnæði á lóðunum þar sem áður var gert ráð fyrir bílastæði fyrir stóra bíla. Þá er gert ráð fyrir göngustíg meðfram lóðunum á milli Bæjarflatar og Gylfaflatar, samkvæmt uppdr. Landslags ehf., mótt. 6. júlí 2016. Tillagan var auglýst frá 29. september til og með 10. nóvember 2016. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 17. nóvember 2016 og er nú lagt fram að nýju.