Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 20. ágúst 2021 var lögð fram fyrirspurn Kristins Darra Arinbjargarsonar og Dagrúnar Davíðsdóttur dags. 22. júní 2021 um stækkun hússins á lóð nr. 15 við Bauganes, samkvæmt meðfylgjandi skissu á yfirlitsmynd. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags 27. ágúst 2021.