Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 26. janúar 2018 var lögð fram umsókn Sigurðar Einarssonar f.h. Faxaflóahafna sf. mótt. 12. desember 2017 varðandi breytingu á deiliskipulagi Austurhafnar vegna lóðar nr. 2 við Austurbakka. Í breytingunni felst að bætt verður við nýrri lóð með byggingarreit 14 á Faxagarði fyrir spenni- og rafdreifistöð auk vaktaðstöðu, samkvæmt uppdr. Batterísins Arkitekta ehf. dags. 13. nóvember 2017. Erindinu var frestað og er nú lagt fram að nýju, ásamt bréfi skrifstofu sviðsstjóra dags. 13. apríl 2018.