Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. janúar 2017 þar sem sótt er um leyfi til að breyta erindi BN050485, um er að ræða stækkun tæknirýma í neðri kjallara, minni háttar breytingar á útliti og innra skipulagi allra hæða og stækkun 7. hæðar hótels á lóð nr. 2 við Austurbakka. Erindi fylgja greinargerðir um algilda hönnun dags. 22. desember 2016, um eldvarnir dags. 22 desember 2016, um hljóðvist dags. 14. desember 2016 og um hávaðadreifingu frá hafnarstarfsemi í Reykjavík dags. í september 2015. Stækkun: xx ferm., xx rúmm. Eftir stækkun, A-rými: xx ferm., xx rúmm. B-rými: xx ferm., xx rúmm. Gjald kr. 10.100