Á fundi skipulagsfulltrúa 6. mars 2015 var lögð fram fyrirspurn Teiknistofunnar Arkitektar ehf. dags. 23. febrúar 2015 varðandi aukningu á nýtingarhlutfalli B og C rýmis á reit 5 á lóð nr. 2 við Austurbakka ásamt uppbroti á hlið er snýr að Reykjastræti og minnkun lámarks dýptar innskota. Einnig er lögð fram greinargerð Teiknistofunnar Arkitektar ehf. dags. 23. febrúar 2015. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.