Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 26. janúar 2016 þar sem sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt 6 hæða hótel, einangrað og klætt að utan með flísum/gluggakerfi, 253 herbergi fyrir 512 gesti, á tveggja hæða kjallara á reit 5A og verður matshluti 06 á lóð nr. 2 við Austurbakka. Erindi fylgir bréf frá hönnuði dags. 21. janúar og skýrsla um hönnunarforsendur hljóðvistar dags. 21. janúar 2016. Stærð A-rýma: 18.447,6 ferm., 68.426,9 rúmm. B-rými: 490 ferm., 2.005,8 rúmm. Gjald kr. 10.100